Cunha útskýrir viðbrögðin - „Get ekki sætt mig við það sem hann sagði“

Cunha huggaði marga leikmenn japanska liðsins eftir leik en lenti síðan í orðaskaki við einn þeirra.

Mynd: EPA

Brasilíumanninum Matheus Cunha var heitt í hamsi þrátt fyrir að hafa komist með þjóð sinni áfram í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins í gær.
Cunha, sem var í byrjunarliðinu gegn Japan, náði sér ekki almennilega á strik í leiknum eftir annars góða byrjun á mótinu.
Brassarnir fögnuðu innilega þegar þeir skoruðu sigurmarkið í uppbótartíma en Cunha, sem huggaði marga leikmenn japanska liðsins eftir leik, var ósáttur með einn þeirra.
Hann lenti í orðaskaki við Kento Shiogai, leikmann japanska liðsins, en Cunha vildi einfaldlega minna hann á að Brasilía hefur orðið heimsmeistari fimm sinnum.
„Ég hef ekkert á móti Japan. Þeir eru frábærir en hann sagði ýmislegt um Brasilíu sem ég get ekki sætt mig við. Þetta snýst um virðingu fyrir okkur og treyjunni,“ sagði Cunha.
Framherjinn birti einnig mynd á Instagram og skrifaði við hana: „Núna veistu aðeins meira um okkur.“
Cunha hefur skorað þrjú mörk á HM til þessa og fær tækifæri til að bæta við í næsta leik, sem verður gegn Fílabeinsströndinni eða Noregi.

"I HAVE FIVE"- Após a vitória do Brasil por 2 a 1 sobre o Japão, o atacante Matheus Cunha respondeu à provocação do japonês Kento Shiogai, que antes do jogo disse que o Brasil "não é mais potência" e que só França e Argentina são fortes. Em vídeo, Cunha olha para a câmera e diz,… pic.twitter.com/vRa4fPXAS3
— Gazeta Brasil (@SigaGazetaBR) June 29, 2026