Fotbolti.net
30.06.26 - 14:56
Elvar Geir Magnússon

Hraunar yfir Van Dijk - „Hans tími er liðinn“

Van Dijk fær útreið frá hollensku pressunni.

Van Dijk fær útreið frá hollensku pressunni.

Canon

Mynd: EPA

Holland féll úr leik í 32-liða úrslitum HM í nótt þegar liðið tapaði gegn Marokkó. Vítakeppni þurfti til að skera úr um úrslitin en Marokkó var betra liðið í leiknum.

Allt stefndi hinsvegar í hollenskan sigur í venjulegum leiktíma þegar Issa Diop jafnaði fyrir Marokkó í uppbótartíma. Fyrirliðinn Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, leit ekki vel út í vaarnaleik sínum í markinu.

Þá vakti athygli að Van Dijk tók ekki vítaspyrnu. Hann hefur verið sakaður um að hafa ekki þorað að taka spyrnuna en einhverjir fjölmiðlar segja að hann hafi kvartað undan óþægindum við læknateymið og því ákveðið að hann myndi ekki taka spyrnuna.

Van Dijk, sem er 34 ára, fær harða gagnrýni í hollenskum fjölmiðlum. Voetbal segir hann hafa verið slakasta mann vallarins og blaðamaðurinn Valentijn Driessen hjá De Telegraaf lét hann heyra það.
Sjáðu HM mörkin: Marokkó sendi Holland heim eftir vító
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Marokkó sendi Holland heim eftir vító

„Ronald Koeman og fyrirliði hans sviku allt sem landsliðið á að standa fyrir. Liðið lék afar varnarsinnaðan leikstíl en varnarleikur Van Dijk var ekki í lagi," segir Driessen.

„Sama hversu marga varnarmenn þú setur í kringum hann þá er tími Van Dijk liðinn. Sama gildir um Koeman sem hefur brugðist illilega.Það er kominn tími á ferska vinda og nýtt upphaf hjá hollenska landsliðinu; án Koeman og Van Dijk."

Það var háspenna þegar Marokkó vann í vítaspyrnukeppninni en hér að neðan má sjá spyrnu sem Bart Verbruggen sparkaði sjálfur inn eftir að hafa varið.

Hraunar yfir Van Dijk - „Hans tími er liðinn“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.