Ísak nefnir mann í Bestu sem hefur sérstaklega hrifið hann

Hrafn Tómasson hefur spilað vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrósar Óskari Hrafni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hrafn Tómasson hefur spilað vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Köln í Þýskalandi, var til viðtals í Chess After Dark á dögunum. Þar var hann spurður út í leikmann í Bestu deildinni sem hann hefur hrifist af á tímabilinu.

TENGT EFNI
Áhugi á öðrum leikmanni KR erlendis frá
„Mér finnst Hrafn Tómasson geðveikt góður, hann er mín týpa af miðjumanni. Hann er mjög góður og það eru margir skemmtilegir. Alexander Rafn (Pálmason) sem dæmi."
„KR er að gera þetta vel upp á að selja leikmenn, erlend félög skoða leikstílinn, sjá pressutölurnar, sjá hversu mikið liðið er með boltann og hvað er verið að gera. Félögin skoða leikmenn KR og Víkings af því þau sjá hvernig bolta þau lið eru að spila. Amin Cosic er líka að fara út. Óskar (Hrafn Þorvaldsson) er að gera þetta mjög vel, ef liðið getur selt 1-2 menn út á hverju ári, þá er það geggjað fyrir (reksturinn) á klúbbnum," segir Ísak í þættinum.
Hrafn (2003) er uppalinn KR-ingur sem leikið hefur mjög vel í liði KR. Hann lenti í slæmum meiðslum 2024 og lék seinni hluta síðasta tímabils á láni með Þrótti. Fótbolti.net sagði frá því fyrr í þessum mánuði að fyrirspurnir hefðu borist um Hrafn frá sænskum félögum.

Ísak Bergmann

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson