30.07.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Conceicao til Dortmund (Staðfest)
Búið er að ganga frá öllu og mun Borussia Dortmund hafa brasilíska miðjumanninn Flavio Conceicao á láni í eitt ár frá Real Madrid. Þessi 29 ára leikmaður valdi Dortmund framyfir Middlesbrough af tveimur ástæðum, þeir buðu hærri laun og verða í Meistarakeppninni í vetur.
Innifalið í samningnum er að Dortmund fær forkaupsrétt á Conceicao ef hann stendur sig. Hann er fimmti brasilíumaðurinn hjá Dortmund, slæst í hóp með Evanilson, Ewerthon, Leandro, Dede og Marcio Amoroso.
