Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 30. júlí 2019 08:50
Magnús Már Einarsson
Þrír leikmenn í Pepsi Max-deildinni með yfir 3,6 milljónir á mánuði
Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Leikmannasamtökin
Tíu leikmenn í Pepsi Max-deild karla eru með meira en 970 þúsund krónur í laun á mánuði hjá félögum sínum samkvæmt könnun leikmannasamtakanna. Laun hafa hækkað síðan samskonar könnun var gerð í Pepsi-deildinni árið 2016.

30% leikmanna í deildinni eru með 242-485 þúsund krónur í laun á mánuði í deildinni í dag. 14,66% leikmanna eru með 485-970 þúsund krónur í laun.

2,62% eða 3 leikmenn eru með á bilinu 970 þúsund til 1,82 milljón króna.

Tveir leikmenn segjast vera með á bilinu 1,82 milljón til 3,64 milljónir króna. Þrír leikmenn í deildinni segjast vera með meira en 3,64 milljónir króna á mánuði hjá félögum sínum.

32,46% leikmanna höfðu upplifað töf á launagreiðslum þeirra árið 2019. Það er 3,54% lækkum frá könnun Leikmannasamtakanna í Pepsi-deildinni árið 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner