Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2021 18:20
Victor Pálsson
Carvajal framlengir til 2025
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Dani Carvajal hefur skrifað undir nýjan samning við Real Madrid sem gildir til ársins 2025.

Þetta staðfesti spænska félagið í gær en Carvajal hefur spilað með stórliðinu frá árinu 2013.

Samningurinn gildir til sumarsins 2025 en þá verður Carvajal 33 ára gamall, hann er 29 ára í dag.

Spænski landsliðsmaðurinn hefur spilað með Real nánast allan sinn feril en hann lék með Bayer Leverkusen í eitt ár frá 2012 til 2013.

Fyrir það lék Carvajal með varaliði félagsins en fékk tækifæri með aðalliðinu 2013.
Athugasemdir
banner
banner