Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 30. júlí 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ólympíuleikarnir í dag - Risaleikir í 8-liða úrslitum
Megan Rapinoe og stöllur mæta Hollendingum
Megan Rapinoe og stöllur mæta Hollendingum
Mynd: Getty Images
8-liða úrslit Ólympíuleikanna hefjast í kvöld en bandaríska kvennalandsliðið mætir Hollandi. Þessi lið áttust við í úrslitum HM árið 2019.

Bandaríkin byrjaði mótið illa og tapaði fyrir Svíum en tókst svo að ná í góð úrslit í síðustu tveimur leikjum riðlakeppninnar.

Liðið mætir Hollandi sem vann sinn riðil með 7 stig, eða jafnmörg og Brasilía sem endaði í öðru sæti.

Svíþjóð mætir Japan í hörkuleik á meðan Brasilía spilar við Kanada.

Þá mætast Bretlandseyjar og Ástralía.

Leikir dagsins:
08:00 Kanada - Brasilía
09:00 Bretlandseyjar - Ástralía
10:00 Svíþjóð - Japan
11:00 Bandaríkin - Holland
Athugasemdir
banner
banner