Fotbolti.net
30.07.26 - 14:56
Elvar Geir Magnússon

Búist við því að Bruno fari til Arsenal

Búist við því að Bruno fari til Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Samkvæmt heimildum BBC er búist við því að Bruno Guimaraes, fyrirliði Newcastle, gangi í raðir Arsenal í þessum glugga.

Brasilíski miðjumaðurinn hefur látið það skýrt í ljós að hann vilji fara til Englandsmeistarana og innan Arsenal er aukin trú á því að það verði að veruleika.
Stuðningsmenn Newcastle tjá sig um tíðindin - Frá breskum séntilmanni yfir í þýskan spaða
TENGT EFNI

Stuðningsmenn Newcastle tjá sig um tíðindin - Frá breskum séntilmanni yfir í þýskan spaða

Bruno hefur skorað 31 mark í 195 leikjum fyrir Newcastle síðan hann kom frá Lyon 2022.

70 milljóna punda tilboði Arsenal var hafnað og félagið þarf að koma með hærra tilboð. Arsenal stefnir að því að ná samkomulagi á næstu dögum en það gæti náð 80 milljónum.

Newcastle hefur verið að missa lykilmenn í sumar; Sandro Tonali gekk í raðir Tottenham og Anthony Gordon fór til Barcelona. Þá er stjórinn Eddie Howe horfinn á braut og Matthias Jaissle, stjóri Al-Ahli í Sádi-Arabíu, tekur væntanlega við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.