Fotbolti.net
30.07.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópa í dag - Stjarnan og Valur með forystu en Vestri í erfiðum málum

Evrópa í dag - Stjarnan og Valur með forystu en Vestri í erfiðum málum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan, Vestri og Valur verða í eldínunni i forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.

Stjarnan heimsækir Ilves til Finnlands en Stjarnan vann fyrri leikinn 1-0 hér heima. Vestri fær RFS frá Lettlandi í heimsókn en Vestri er í erfiðri stöðu, 4-1 undir eftir útileikinn.

Þá heimsækir Valur Zrinjski Mostar til Bosníu. Valur er 1-0 yfir eftir fyrri leikinn heima.

Þá eru margir Íslendingar í eldlínunni með erlendum félögum. Elías Rafn Ólafsson og félagar í Midtjylland fá Besiktas í heimsókn en Danirnir eru marki undir í einvíginu. Þá fara Kristian Nökkvi Hlynsson og félagar í Twente í heimsókn til Ferencvaros í Ungverjalandi. Ferencvaros er 2-1 yfir í einvíginu.

Í Sambandsdeildinni eru Hjörtur Hermannsson og Kolbeinn Þórðarson hjá Gautaborg en liðið heimsækir Levadia í Eistlandi. Eistar eru með 2-1 forystu. Eggert Aron Guðmundsson, Sævar Atli Magnússon og Kristall Máni Ingason hjá Brann fá Cluj frá Rúmeníu í heimsókn, staðan er 2-2 í einvíginu.

Róbert Frosti Þorkelsson og félagar í GAIS heimsækja Nordsjælland. GAIS er 1-0 yfir. Daníel Ingi Jóhannesson er á mála hjá Nordsjælland. Þá fara Alex Freyr Elísson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson hjá NSÍ Runavík í heimsokn til Koper í Slóveníu. Slóvenarnir eru 2-0.
fimmtudagur 30. júlí

EUROPE: Europa League, 2nd qualifying round
17:00 Midtjylland - Besiktas
18:30 Ferencvaros - Twente

EUROPE: Conference League, 2nd qualifying round
16:00 Ilves - Stjarnan
16:30 Levadia T - Goteborg
17:00 SK Brann - Universitatea Cluj
17:00 HB Torshavn - Motherwell
17:00 FC Nordsjaelland - GAIS
18:00 Vestri - Rigas FS
18:30 Panathinaikos - Paks
18:30 Zrinjski - Valur
18:45 Koper - NSI Runavik
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.