Fotbolti.net
29.07.26 - 22:39
Stefán Marteinn Ólafsson

Aron Snær magnaður: Skrítið að segja það en ég sá þetta fyrir mér

Auglýsing
Aron Snær Ingason fagnar marki í kvöld.

Aron Snær Ingason fagnar marki í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Þróttur vann öflugan sigur á Aftureldingu í kvöld og skellti sér í toppsæti Lengjudeildarinnar og verður þar yfir verslunarmannahelgina. 

Lestu um leikinn: Þróttur R. 4 - 1 Afturelding

„Við vorum bara helvíti góðir" sagði Aron Snær Ingason sem átti frábæran leik fyrir Þrótt í kvöld og skoraði tvö mörk. 

„Við kveiktum á okkur og áttum inni, sérstaklega ég eftir seinasta leik. Maður fékk að taka þátt í þessum leik en ekki hinum" 

„Við vorum bara 'on it' og ég fann það bara í gær og inni í klefa áðan að við vorum bara allir 'on it' og værum að fara taka þá" 

Þróttarar lágu svolítið til baka til að byrja með en náðu svo inn marki eftir vítaspyrnu sem gjörbreytti svo leiknum.

„Við vorum smá stressaðir í byrjun, þorðum ekki alveg að spila. Þeir eru góðir í að éta upp pressu þannig við bara byrjuðum að sparka langt en svo þegar að fyrsta markið kom þá kom meira sjálfstraust í okkur og við þorðum að spila. Eftir það þá áttu þeir ekki breik" 

Aron Snær Ingason skoraði annað mark leiksins og setti hann boltann á nærstöngina þegar allir bjuggust við því að hann væri að fara koma með fastan bolta fyrir markið.

„Ég sá þetta, kannski skrítið að segja það en ég sá þetta fyrir mér í gær. Ég lendi oft í þessari stöðu og er oft að gefa fyrir og það heppnast ekkert alltaf og Venni er líka búinn að segja fyrir leik að negla á markið þegar við fáum skottækifæri og það var rétt hjá honum" sagði Aron Snær Ingason.

Nánar er rætt við Aron Snær Ingason í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.19+2137
2Afturelding18+2236
3Fylkir19+734
4HK19+932
5Njarðvík19+632
6Grótta18+127
7Leiknir R.19+225
8Vestri19-1124
9ÍR19-722
10Grindavík19-621
11Völsungur19-1220
12Ægir19-328
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.