29.07.26 - 22:36
Sigurjón Árni Torfason
Létt yfir Ray eftir langþrátt mark: Vonandi að þeir bæti sóknarleikinn okkar
Auglýsing

Ray Anthony var eðlilega kátur eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík tók á móti Leikni í kvöld á Stakkavíkurvelli í 16. umferð Lengjudeildar karla. Leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna í Grindavík. Fótbolti.net voru mættir á svæðið og heyrðu í Ray Anthony eftir leik.
Lestu um leikinn: Grindavík 1 - 0 Leiknir R.
„Já, bara strákarnir frábærir. Við fórum yfir það að frammistaðan í leiknum á móti Völsungi var ekki alveg eins og við ætluðum að gera þarna fyrir norðan og það er bara frábært svar hjá þeim."
Leiknir byrjuðu fyrstu mínúturnar mjög vel og Grindavík komust varla framyfir miðju. Svo breyttist leikurinn og Grindavík tóku yfir leikinn.
„Menn eru varkárir eftir síðasta tapleik og við bara hvöttum þá til að halda áfram að allir myndu berjast sem einn, sem þeir gerðu. Eins og ég segi, þeir voru frábærir í dag, menn voru orðnir þreyttir og við áttum í erfiðleikum bara með að taka einhvern út af því að bara gáfu sig allt í þetta."
Grindavík fengu tvo nýja leikmenn til sín í dag þá Aron Skúla frá Leikni og Arnar Breka frá ÍBV.
„Þeir eiga hjálpa okkur með sóknarhlutann. Við erum flottir varnarlega og við þurfum aðeins að bæta í sóknarleikinn hjá okkur og það er vonandi að þeir geri það." Sagði Ray Anthony við Fréttamann Fótbolta.net eftir leik.