30.07.26 - 21:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid vann félög í ensku úrvalsdeildinni í baráttunni um Espi (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Real Madrid hefur tilkynnt um kaup á framherjanum Carlos Espi frá Levante. Félagið nýtti sér 25 milljón evra riftunarákvæði í samningi hans. Hann skrifar undir fimm ára samningþ
Þessi 21 árs gamli Spánverji var gríðarlega eftirsóttur en mörg félög í ensku úrvalsdeildinni höfðu áhuga á honum. Það var útlit fyrir að hann væri á leið til Englands í dag þangað til Real Madrid blandaði sér í baráttuna.

Spænsku risarnir settu meira púður í að fá Espi eftir að félagið samþykkti 34 milljón punda tilboð Fulham í Gonzalo Garcia.
Levante greinir frá því að Espi sé dýrasti uppaldi leikmaður í sögu félagsins. Hann skoraði 20 mörk í 66 leikjum fyrir Levante.