Fotbolti.net
30.07.26 - 21:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Skotmark Liverpool nálgast PSG

Skotmark Liverpool nálgast PSG
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

PSG er nálægt því að ná samkomulagi við Mónakó um kaupverð á Maghnes Akliouche. Viðræður milli frönsku félaganna eru langt á veg komnar.



Akliouche er 24 ára gamall vængmaður en það má búast við því að sterkir vængmenn færi sig um set í sumar.

Liverpool heyrði í Mónakó varðandi Akliouche en enska félagið hefur sett allt púður í að næla í Bradley Barcola frá PSG. Þá er útlit fyrir að Real Madrid muni vinna Liverpool og PSG í baráttunni um Yan Diomande, vængmann Leipzig.

Akliouche hefur spilað 129 leiki í frönsku deildinni og Meistaradeildinni, skorað 21 mark og lagt upp 26.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.