Fotbolti.net
30.07.26 - 18:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Stones gerir tveggja ára samning við ítölsku meistarana (Staðfest)

Stones gerir tveggja ára samning við ítölsku meistarana (Staðfest)
Canon

Mynd: Inter Milan

John Stones er genginn til liðs við Inter á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Man City rann út í sumar.

Enski varnarmaðurinn skrifar undir tveggja ára samning við ítölsku meistarana.
Stones er 32 ára en það var áhugi á honum frá Arsenal og Chelsea en hann vildi skrifa nýjan kafla á Ítalíu.

Stones er uppalinn hjá Barnsley en hann gekk til liðs við Everton árið 2013. Hann færði sig síðan til Man City árið 2016 þar sem hann vann ensku deildina sex sinnum, enska bikarinn og deildabikarinn þrisvar sinnum og Meistaradeildina einu sinni.

Hann hefur spilað 94 landsleiki en hann var í enska landsliðshópnum á HM í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.