30.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Brechet til Inter. (Staðfest)

Jeremie Brechet.


Jeremie Brechet.

Inter Milan hefur gengið frá kaupum á vinstri bakverðinum Jeremie Brechet frá Lyon fyrir 4,7 milljónir evra. Þessi 24 ára Frakki mun leisa Francesco Coco af en hann missir af byrjun tímabilsins vegna hnémeiðsla. Þar með verða þrír Frakkar í liði Inter en fyrir eru þeir Sabri Lamouchi og Stéphane Dalmat. Brechet á að baki 117 leiki fyrir Lyon á fimm tímabilum í Frönsku deildinni.
