30.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Carew til Roma. (Staðfest) og fleiri fréttir af Roma.

John Carew í leik með Valencia.


John Carew í leik með Valencia.

Norski framherjinn John Carew er farinn til Roma á láni frá Valencia út þetta tímabil en hann stóðst læknisskoðun á Ítalíu nú í morgun. Carew sem er 23 ára mun leika í treyju númer 23 hjá Roma. Hann á að baki 83 deildarleiki með Valencia og hefur skorað 20 mörk í þeim.
Hinn sterki Argentíski varnarmaður Walter Samuel hefur framlengt samning sinn við Roma til 2008.
Varnarmaðurinn Leon Cufré hefur hinsvegar yfirgefið Roma um sinn og mun leika með nýluðum Siena í vetur en hann verður þar á láni út þetta tímabil.
Varnarmaðurinn Leon Cufré hefur hinsvegar yfirgefið Roma um sinn og mun leika með nýluðum Siena í vetur en hann verður þar á láni út þetta tímabil.
