30.08.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson
Ostenstad til Rangers (staðfest)

Egil Ostenstad


Egil Ostenstad

Norðmaðurinn Egil Ostenstad hefur skrifað undir eins árs samning við Glasgow Rangers eftir að hafa staðist læknisskoðun í dag. Ostenstad er 31 árs gamall og hefur leikið undanfarin ár með Blackburn Rovers í ensku úrvalsdeildinni. Þetta eru önnur skiptin milli þessara liða á tveimur dögum en í gær fór Barry Ferguson, fyrirliði Rangers, til Blackburn.
Alex McLeish náði ekki að festa kaup á norðmanninum John Carew en fréttir bárust af því í morgun að hann hefði farið til Roma. Hann greip því til varaáætlunarinnar og fékk Ostenstad til sín.
