30.08.26 - 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal fær bakvörð frá Man Utd (Staðfest)

Mynd: Arsenal

Mynd: Arsenal
Arsenal hefur fengið enska hægri bakvörðinn Habeeb Ogunneye frá Manchester United á frjálsri sölu.
Þessi tvítugi varnarmaður er uppalinn hjá Manchester United en lék aldrei með aðalliði félagsins.
Hann var á láni hjá Newport County í ensku D-deildinni á síðustu leiktíð áður en hann sneri aftur til United í sumar.
Arsenal hefur nú fengið leikmanninn til sín án greiðslu. United tryggði sér þó 40 prósenta hlut í næstu sölu hans.
Varnarmaðurinn mun leika með unglinga- og varaliði Arsenal á tímabilinu.

Welcome to The Arsenal, Habeeb ??
— Arsenal Academy (@ArsenalAcademy) August 30, 2026
Right-back Habeeb Ogunneye has completed a move to north London ????