30.08.26 - 10:25
Brynjar Ingi Erluson
Emi Martínez til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Chelsea

Mynd: Chelsea
Argentínski landsliðsmarkvörðurinn Emiliano Martínez er genginn til liðs við Chelsea frá Aston Villa fyrir 7,5 milljónir punda.
Martínez, sem er 33 ára, skrifaði undir tveggja ára samning við Chelsea með möguleika á eins árs framlengingu.
Argentínski markvörðurinn vildi yfirgefa Aston Villa og var lengi vel sterklega orðaður við Juventus. Ítalska félagið dró sig þó úr baráttunni eftir að fimm milljóna punda tilboði þess var hafnað.
Chelsea blandaði sér í málið eftir að Robert Sanchez gerði tvenn afdrifarík mistök í 3-2 sigrinum gegn Fulham á mánudag og hefur nú landað Argentínumanninum.
Martínez lék með Aston Villa frá 2020 til 2026 og vann Evrópudeildina með félaginu á síðustu leiktíð. Á þeim tíma varð hann einnig heimsmeistari með Argentínu, var tvívegis valinn besti markvörður ársins hjá FIFA og vann Yashin-bikarinn tvisvar á verðlaunahátíð Ballon d'Or.

Fearless. pic.twitter.com/fwmjGNVs7S
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 30, 2026