Fotbolti.net
30.08.26 - 13:53
Brynjar Ingi Erluson

Man City lánar miðvörð til nýliðanna (Staðfest)

Man City lánar miðvörð til nýliðanna (Staðfest)
Canon

Mynd: Coventry City

Manchester City hefur lánað hinn 18 ára gamla Stephen Mfuni til nýliða Coventry City út tímabilið.
Mfuni er uppalinn hjá Manchester City og leikur í hjarta varnarinnar. Hann hefur jafnframt verið fastamaður í yngri landsliðum Englands.

Hann lék sinn fyrsta leik með aðalliði City á síðustu leiktíð þegar liðið vann Exeter 10-1 í enska bikarnum. Í kjölfarið var hann lánaður til Watford út tímabilið.

Mfuni náði aðeins að leika átta leiki fyrir Watford áður en meiðsli settu strik í reikninginn. Hann er nú orðinn heill og mun halda áfram að þroskast hjá nýliðum Coventry á láni út tímabilið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.