Fotbolti.net
30.08.26 - 16:04
Brynjar Ingi Erluson

Stærsta sala í sögu Englandsmeistaranna

Stærsta sala í sögu Englandsmeistaranna
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski vængmaðurinn Gabriel Martinelli er á leið til Al Hilal í Sádi-Arabíu frá Englandsmeisturum Arsenal fyrir rúmar 55 milljónir punda.
Félögin hafa náð munnlegu samkomulagi um kaup Al Hilal á Gabriel Martinelli sem mun skrifa undir langtímasamning við sádiarabíska félagið.

Þetta verður þá stærsta sala í sögu Arsenal, en Alex-Oxlade Chamberlain á metið er hann var seldur til Liverpool fyrir 35 milljónir punda árið 2017.

Martinelli hefur fengið grænt ljós frá Arsenal til að ferðast til Sádi-Arabíu og ganga frá sínum málum. Al Hilal vinnur einnig að kaupum á Ollie Watkins frá Aston Villa og yrðu þeir Martinelli og Watkins þriðju stóru leikmennirnir sem félagið fær í sumar, en Crysencio Summerville kom frá West Ham fyrr í glugganum.

Martinelli gekk til liðs við Arsenal frá brasilíska utandeildarfélaginu Ituano árið 2019. Hann lék 272 leiki og skoraði 68 mörk á sjö árum hjá Lundúnafélaginu.

Brasilíumaðurinn vann sinn fyrsta og eina stóra titil með Arsenal á síðustu leiktíð þegar liðið varð Englandsmeistari. Hann vann einnig Samfélagsskjöldinn með félaginu árið 2023.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.