30.08.26 - 15:40
Brynjar Ingi Erluson
Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir út í Hughes - „Félaginu til skammar“

Richard Hughes er ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum Liverpool

Mynd: EPA

Richard Hughes er hér ásamt Michael Edwards

Mynd: Liverpool

Franski blaðamaðurinn Romain Molina greinir frá því í dag að Richard Hughes, yfirmaður íþróttamála hjá Liverpool, hafi samhliða starfi sínu hjá enska félaginu unnið að leikmannakaupum Al Hilal í Sádi-Arabíu í sumar.
Molina er virtur rannsóknarblaðamaður sem hefur flett ofan af valdamiklum mönnum innan fótboltans og ítrekað skrifað um flókin og viðkvæm mál.
Þegar hefur verið greint frá því að Richard Hughes muni yfirgefa Liverpool eftir lok félagaskiptagluggans og taka við sambærilegu starfi hjá Al Hilal í Sádi-Arabíu.
Stuðningsmenn Liverpool hafa verið mjög ósáttir við störf Hughes síðan hann kom til félagsins og telja sumargluggann hafa valdið miklum vonbrigðum. Nú segir Molina að Hughes hafi ekki aðeins verið að vinna fyrir Liverpool í sumar heldur einnig komið að leikmannakaupum Al Hilal.
Samkvæmt samkomulagi átti Hughes ekki að hefja störf fyrir Al Hilal fyrr en að glugganum loknum. Molina segir það hins vegar alvitað innan fótboltaheimsins að hann hafi þegar unnið að leikmannakaupum sádiarabíska félagsins. Þá séu margir innan geirans undrandi á vinnubrögðum hans.
Fregnirnar hafa aukið enn á óánægju stuðningsmanna Liverpool og hafa margir þeirra látið Hughes heyra það á X.
„Richard Hughes er félaginu til skammar og Liverpool ætti sömuleiðis að skammast sín fyrir að leyfa þessu að gerast,“ skrifaði stjórnandi Anfield Edition.
„Þetta var einn mikilvægasti félagaskiptagluggi Liverpool í langan tíma en maðurinn sem hafði yfirumsjón með honum var á sama tíma að sinna viðskiptum fyrir annað félag. Þetta er skammarleg vanræksla. Richard Hughes verðskuldaði aldrei að starfa fyrir félagið okkar,“ skrifaði Anfield Sector.
Annar stuðningsmaður benti á að Liverpool hefði þurft að styrkja sig á köntunum á meðan Al Hilal hefur fengið til sín nokkra öfluga vængmenn í sumar.
„Liverpool vantaði vængmenn en Hughes er þegar búinn að útvega hinu félaginu sínu í Sádi-Arabíu tvo slíka. Hann virðist hafa unnið fyrir þá í allt sumar. Þetta er algjört rugl,“ skrifaði viðkomandi.