30.08.26 - 16:45
Brynjar Ingi Erluson
Watkins til Al Hilal (Staðfest)

Mynd: Al Hilal

Mynd: Al Hilal
Al Hilal hefur staðfest komu enska framherjans Ollie Watkins frá Aston Villa.
Watkins, sem er þrítugur, kemur til Al Hilal frá Aston Villa fyrir rúmlega 50 milljónir punda. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við sádiarabíska félagið í dag.
Al Hilal fær þarna mikla markamaskínu en Watkins er markahæsti leikmaður Aston Villa í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Hann er annað stóra nafnið sem Al Hilal fær til sín í sumar á eftir Crysencio Summerville sem kom frá West Ham. Gabriel Martinelli er síðan næstur inn en félagið hefur þegar náð samkomulagi við Arsenal um kaupverð.

Al-Hilal confirm Ollie Watkins has joined from Aston Villa on a three-year contract.???? pic.twitter.com/NPvhj205LI
— Ben Jacobs (@JacobsBen) August 30, 2026