Hvaða félög fá titlana ef City verður svipt þeim?

Stjórnendur Man City með Englandsmeistarabikarinn.

Mynd: EPA

Manchester United undir stjórn Jose Mourinho endaði í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Mynd: EPA

Liverpool fengi þrjá Englandsmeistaratitla til viðbótar.

Mynd: EPA

Arteta væri þrefaldur Englandsmeistari með Arsenal.

Mynd: EPA

Tony Pulis fór með Stoke City í úrslitaleik FA-bikarsins.

Mynd: EPA

Pep Guardiola vann deildabikarinn fimm sinnum með Manchester City.

Mynd: EPA

Vilhjálmur Bretaprins horfir á FA-bikarinn.

Mynd: EPA

Erling Haaland með Englandsmeistarabikarinn.

Mynd: EPA

Stjórnendur Man City með Englandsmeistarabikarinn.

Mynd: EPA
Ein af þeim spurningum sem hefur vaknað í kjölfarið er hvað myndi gerast við titlana sem City vann á þessum árum ef félagið yrði svipt þeim. Það gæti verið ein af refsingunum.
Englandsmeistaratitlar
Manchester City vann þrjá Englandsmeistaratitla á tímabilinu sem rannsóknin nær yfir.
Árið 2012 vann City titilinn eftir ótrúlegan lokadag þegar Sergio Aguero skoraði sigurmarkið gegn QPR á lokasekúndunum. Manchester United endaði í öðru sæti, með sama stigafjölda en lakari markatölu.
Ef titillinn yrði færður til næsta liðs myndi United því fá Englandsmeistaratitilinn 2011/12. United endaði einnig í öðru sæti tímabilið 2017/18 þegar City varð meistari með með 100 stig.
Liverpool var í öðru sæti þegar City varð meistari tímabilið 2013/14. Þetta var einmitt tímabilið þar sem Steven Gerrard rann á móti Chelsea á Anfield í leik sem varð eitt frægasta augnablik í sögu deildarinnar. Ef titillinn yrði færður yfir til Liverpool yrði Gerrard því, eftir allt saman, Englandsmeistari.
Rannsóknin nær bara til 2018 en City hefur unnið fimm Englandsmeistaratitla til viðbótar eftir þann tíma. Ef þau ár eru líka tekin inn í myndina þá myndi Liverpool vinna tvo titla til viðbótar, United einn og Arsenal tvo.
Liðin í öðru sæti
2011/12 - Manchester United
2013/14 - Liverpool
2017/18 - Manchester United
---
2018/19 - Liverpool
2020/21 - Manchester United
2021/22 - Liverpool
2022/23 - Arsenal
2023/24 - Arsenal
FA-bikarar
City vann FA-bikarinn árið 2011 eftir 1-0 sigur á Stoke City í úrslitaleiknum. Stoke hefur ekki unnið FA-bikarinn síðan 1972 og hefði því, samkvæmt þessari sviðsmynd, fengið einn stærsta titil í sögu félagsins.
„Mér finnst eins og það hafi verið svindlað á mér. Hvað sem gerist næst fáum við aldrei þennan dag aftur, tækifærið til að fagna í Stoke-on-Trent með bikarinn og verðlaunapeningana sem við börðumst svo heiðarlega fyrir," sagði Tony Pulis, fyrrum stjóri Stoke, á BBC á dögunum.
Man City vann FA-bikarinn svo næst árið 2019 eftir sigur á Watford í úrslitaleik. City vann þá Man Utd í úrslitaleik 2023 og Chelsea í úrslitaleik á síðustu leiktíð.
Liðin í öðru sæti:
2010/11 - Stoke City
---
2018/19 - Watford
2022/23 - Manchester United
2025/26 - Chelsea
Deildabikarinn
Sunderland er annað félag sem myndi fá ansi sérstaka uppfærslu á bikarasafnið ef refsingin verður sú að titlarnir verða teknir af City. City vann Sunderland 3-1 í úrslitaleik deildabikarsins árið 2014. Sunderland var komið yfir í leiknum en City sneri honum við.
Ef titillinn yrði færður til tapliðsins myndi Sunderland vinna sinn fyrsta deildabikar.
Félagið hefur ekki unnið stóran titil síðan það vann FA-bikarinn árið 1973.
Liverpool myndi einnig fá deildabikarinn 2016 ef sömu reglu yrði beitt. Arsenal myndi svo fá deildabikarinn 2018. City vann Arsenal 3-0 í úrslitaleiknum og lyfti bikarnum í fyrsta sinn undir stjórn Pep Guardiola.
Liðin í öðru sæti
2013/14 - Sunderland
2015/16 - Liverpool
2017/18 - Arsenal
---
2018/19 - Chelsea
2019/20 - Aston Villa
2020/21 - Tottenham
2025/26 - Arsenal
Svo vann City líka Samfélagsskjöldinn á þessu tímabili, árið 2012 eftir sigur á Chelsea í úrslitaleik. Þess ber þó að geta að FA-bikarinn og deildabikarinn eru á vegum enska fótboltasambandsins og EFL, ekki ensku úrvalsdeildarinnar sem hefur rannsakað brot félagsins. City vann líka Meistaradeildina einu sinni en sú keppni er á vegum UEFA.

Manchester United undir stjórn Jose Mourinho endaði í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Mynd: EPA

Liverpool fengi þrjá Englandsmeistaratitla til viðbótar.

Mynd: EPA

Arteta væri þrefaldur Englandsmeistari með Arsenal.

Mynd: EPA

Tony Pulis fór með Stoke City í úrslitaleik FA-bikarsins.

Mynd: EPA

Pep Guardiola vann deildabikarinn fimm sinnum með Manchester City.

Mynd: EPA

Vilhjálmur Bretaprins horfir á FA-bikarinn.

Mynd: EPA

Erling Haaland með Englandsmeistarabikarinn.

Mynd: EPA
