Fotbolti.net
30.10.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alonso: Höfum ekkert rætt um að hann fari í janúar

Alonso: Höfum ekkert rætt um að hann fari í janúar
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso, stjóri Chelsea, segir að Estevao muni fá sín tækifæri á tímabilinu og það hafi ekkert verið rætt um að Brasilíumaðurinn fari á láni í janúar.

„Auðvitað mun hann spila. Tímabilið er langt og það verða augnablik fyrir alla. Þetta er ferli fyrir liðið, fyrir Este, fyrir mig," sagði Alonso á fréttamannafundi.

Estevao er 19 ára kantmaður sem hefur byrjað tvo leiki á tímabilinu, báða í deildabikarnum. Hann hins vegar kom ekki við sögu gegn Liverpool á miðvikudag þegar Chelsea féll úr leik í deildabikarnum. Mest hefur hann spilað átján mínútur í deildinni og var það í síðustu umferð.
Útskýrir af hverju hann notaði ekki Estevao - „Þarft að vera tilbúinn í það“
TENGT EFNI

Útskýrir af hverju hann notaði ekki Estevao - „Þarft að vera tilbúinn í það“

„Ég er viss um að hann muni fá sína leiki á þessu tímabili, fá sínar mínútur. Við erum enn snemma á tímabilinu, en hann mun fá tækifæri."

Alonso var spurður hvort að skapgerð Brasilíumannsins hefði áhrif.

„Þetta snýst ekki um skapgerð. Þetta snýst um samhengi leikjanna. Þetta hefur snúist um byrjun tímabilsins."

„Nei, nei, nei. Engin samtöl um það,"
sagði Alonso þegar spurt var út í möguleikann á að Estevao fari á láni í janúar.

Chelsea tekur á móti Manchester United í hádegisleik morgundagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Alonso: Höfum ekkert rætt um að hann fari í janúar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.