Fotbolti.net
09.10.26 - 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sænskur áhugi á Brynjari Gauti

Sænskur áhugi á Brynjari Gauti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Gautur Harðarson leikmaður Þróttar er á blaði hjá sænsku félagi en Varbergs BoIS í sænsku B-deildinni hefur sýnt miðjumanninum áhuga. Þetta kom fram í risastóra íslenska slúðurpakkanum í gær.

Varbergs er í 3. sæti B-deildarinnar og í harðri baráttu um að fara beint upp í úrvalsdeildina þegar fimm umferðir eru eftir.
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
TENGT EFNI

Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti

Þróttarar eru meðvitaðir um áhugann á Brynjari.

Fótbolti.net ræddi við Kristján Kristjánsson, formann fótboltadeildar Þróttar, og hann segir að Brynjar eigi ár eftir af samningi við félagið og vonir standi til að sá samningur verði framlengdur.

Brynjar Gautur er fæddur árið 2004 og var einn af bestu mönnum úrslitaleiksins þegar Þróttur tryggði sér sæti í Bestu deildinni með sigri á Fylki í úrslitaleik Lengjudeildarumspilsins. Hann kom við sögu í 20 leikjum í Lengjudeildinni í sumar, byrjaði þá alla, og líka alla þrjá leiki í umspilinu.
Sænskur áhugi á Brynjari Gauti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.