30.11.04 - 12:09
Heinze vill ekki spila um jólin

Gabriel Heinze varnarmaður Manchester United er enn einu sinni að setja Sir Alex Ferguson í klípu. Eftir að hafa spilað á Copa America í sumar fór hann á Ólympíuleikana í Aþenu og spilaði þar með landsliði Argentínu. Hann missti af byrjun tímabilsins auk þess að koma örmagna aftur á Old Trafford þegar hann komst þangað í fyrsta skipti. Hans fyrsta æfing með sínu nýja liði var 7. september en félagaskipti hans voru staðfest þann 11. júní. hann lék sinn fyrsta leik þann 10. september.
Hann missti af byrjun tímabilsins auk þess að koma örmagna aftur á Old Trafford þegar hann komst þangað í fyrsta skipti. Hans fyrsta æfing með sínu nýja liði var 7. september en félagaskipti hans voru staðfest þann 11. júní.
Það nýjasta er að leikmaðurinn vill ekki spila yfir jólin. Heinze er strangtrúaður kaþólikki og hefur hann alltaf spilað með liðum sem fá frí yfir jólin. Heinze sagði þetta í dag við The Sun: "Jólin og páskarni eru mikilvægustu árshlutarnir fyrir mig, ég er strangtrúaður, ég fer í messu.
Það verður mjög erfitt fyrir mig en ég vona að ég geti aðlagast þessu og einbeitt mér að því sem ég þarf að gera. Ég er vanur því að spila mikið af leikjum en það sem er erfitt fyrir mig eru dagsetningarnar á leikjunum.
Ég hef alltaf eyt jólunum heima með fjölskyldunni minni. Það er mjög sérstakur tími þegar við lokum dyrunum á húsinu og allir byrja að skemmta sér.
Það er einhver tilfinning innra með manni. Það er tíminn sem maður notar til að hlaða batteríin til að halda áfram á næsta ári með meiri krafti og styrk. En ég veit ekki hvort ég verði þar í ár, og það verður mjög skrýtið."
Heinze hlýtur þó að sjá að sér og spila um jólin, ellegar verður Sir Alex Ferguson eflaust ekki par sáttur og hver veit hverju hann tekur uppá til að fá drenginn til að þrá ekkert heitara en að spila fyrir Manchester United!
Leikir Manchester United í desember:
4. desember: Man Utd - Southampton
13. desember: Fulham - Man Utd
18. desember: Man Utd - Crystal Palace
26. desember: Man Utd - Bolton
28. desember: Aston Villa - Man Utd
1. janúar: Middlesbrough - Man Utd
Sjá einnig:
Heinze til Man Utd (Staðfest)
Sir Alex: Henze spilar jafnvel aldrei fyrir United!
Heinze pirrar Alex gamla enn frekar