Andri Rúnar Bjarnason ræddi við Fótbolta.net í dag. Hann var spurður hvort hann væri að ganga í raðir ÍBV frá danska félaginu Esbjerg en Andri gat ekki staðfest neitt í þeim efnum og vildi ekki tjá sig um málið. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Andri á leiðinni í ÍBV.
„Þetta er að fara verða leiðinlegasta viðtal sem þú hefur tekið. Ég get ekki sagt neitt. Það er ekki búið að ganga frá mínum málum í Esbjerg," sagði Andri Rúnar.
„Þetta er að fara verða leiðinlegasta viðtal sem þú hefur tekið. Ég get ekki sagt neitt. Það er ekki búið að ganga frá mínum málum í Esbjerg," sagði Andri Rúnar.
„Þetta er á viðkvæmu stigi núna og það þarf að ganga frá málum mínum úti áður en næsta skref er tekið."
Hvernig er standið á þér, skrokkurinn, ertu heill heilsu?
„Ég er heill og búinn að vera heill allt tímabilið og var heill nánast allt tímabilið í fyrra, þrátt fyrir minni spiltíma. Ég er alveg heill," sagði Andri Rúnar.
Andri hefur byrjað tvo leiki með Esbjerg á tímabilinu og komið inn á í tveimur. Þá kom hann inn á í einum deildarleik. Hann hefur ekki verið í leikmannahópnum hjá aðalliðinu síðan í ágúst.
Athugasemdir