Adam Ingi Benediktsson spilaði á sunnudag sinn fyrsta keppnisleik með aðalliði Gautaborgar. Markvörðurinn, sem er 19 ára, hélt hreinu í stórsigri liðsins.
Sjá einnig:
Adam Ingi verulega glaður - „Ég lifi í draumi"
Sjá einnig:
Adam Ingi verulega glaður - „Ég lifi í draumi"
Adam skrifaði undir atvinnumannasamning við Gautaborg fyrr í þessum mánuði. Giannis Anestis, markvörður félagsins, er á förum og hefur Mikael Stahre, þjálfari Gautaborgar, trú á Adam.
„Það var mikilvægt fyrir hann að halda hreinu. Hann er klárlega leikmaður sem Gautaborg hefur trú á. Þess vegna skrifuðum við undir þriggja ára samning við hann," sagði Stahre við Fotbollskanalen.
Athugasemdir