Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   lau 30. nóvember 2024 18:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: MIlan með öruggan sigur í þokunni
Mynd: EPA

Milan hefur verið í miklum vandræðum í ítölsku deildinni undir stjórn Paulo Fonseca en liðið vann góðan sigur á Empoli í dag.


Það var svakalega mikil þoka í Mílanó borg í dag og það var erfitt fyrir áhorfendur að sjá hvað væri að gerast inn á vellinum en Alvaro Morata kom liðinu yfir eftir tuttugu mínútna leik.

Hollenski miðjumaðurinn Tijani Reijnders bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks og innsiglaði sigur liðsins með marki eftir góða skyndisókn.

Milan er í 7. sæti með 22 stig eftir 13 umferðir, þremur stigum á eftir Juventus. Empoli er í 10. sæti með 16 stig. Como og Monza gerðu jafntefli í botnbaráttuslag en Como er í 18. sæti með 11 stig og Monza er í sætinu fyrir neðan með tíu stig.

Como 1 - 1 Monza
1-0 Yannik Engelhardt ('36 )
1-1 Gianluca Caprari ('53 , víti)

Milan 3 - 0 Empoli
1-0 Alvaro Morata ('19 )
2-0 Tijani Reijnders ('44 )
3-0 Tijani Reijnders ('69 )


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp