Fotbolti.net
30.12.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Murcia fær Hurtado og Gancedo (Staðfest)

Ivan Hurtado.

Ivan Hurtado.

Canon
Murcia næstneðsta liðið í La Liga á Spáni hefur fengið liðsstyrk því að tveir Suður-Amerískir hafa gengið til liðs við félagið. Varnarmaðurinn Ivan Hurtado frá Ekvador hefur komið til liðsins frá Barcelona þó ekki liðinu á Spáni heldur í Ekvador og er talið að hann hafi komið á láni. Argentíski Miðjumaðurinn Leonel Gancedo hefur einnig komið til Murcia og kemur hann frítt eftir að hafa verið leystur undan samningi frá Osasuna í haust.
Murcia situr eins og fyrr segir í næstneðsta sæti La Liga eftir að hafa sigrað 2.deildina á Spáni í fyrra en það hefur háð liðinu í ár hversu mörg jafntefli það hefur gert en þau eru alls níu í 17 leikjum.

Talið er að Murcia ætli að styrkja sig meira í janúar og ætlar liðið meðal annars að reyna að krækja í Roberto Bonano markvörð Barcelona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.