30.12.04 - 08:59
Babayaro til Newcastle (Staðfest)

Newcastle hafa gengið frá kaupunum á nígeríska varnarmanninum Celestine Babayaro frá Chelsea. Hann mun koma til félagsins á nýársdag en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. Babayaro er 26 ára gamall og hefði orðið samningslaus í lok tímabilsins hjá Chelsea.
Hann gæti leikið sinn fyrsta leik í FA bikarkeppninni gegn Yeading enBabayaro getur einnig spilað með liðinu í UEFA keppninni þar sem hann hefur ekki spilað með Chelsea í Meistaradeildinni þrátt fyrir að vera á bekknum í nokkrum leikjum.
Babayaro vann FA bikarinn, Deildabikarinn, Góðgerðarskjöldinn og Ofurbikar Evrópu á sjö og hálfs árs löngum ferli sínum á Stamford Bridge en hann hefur þó ekki fengið að spilað mikið síðan Roman Abramovich kom til skjalanna.
Hann er líklega fyrsti af nokkrum kaupum Graeme Souness á tímabilinu þar sem Jean-Alain Boumsong er enn efstur á óskalistanum.