Fotbolti.net
30.12.04 - 14:46

Luxemburgo tekur við Real Madrid (Staðfest)

Luxemburgo tekur við Real Madrid (Staðfest)
Canon
Eins og við greindum frá í morgun var líklegt að Vanderlei Luxemburgo myndi taka við stórliði Real Madrid. Þetta var staðfest á blaðamannafundi rétt í þessu í kjölfar stjórnarfunds sem haldinn var í hádeginu. Hann tekur við starfinu af Marinao Garcia Remon sem tók við stöðunni af Jose Antonio Camacho í lok september.
Luxemburgo stjórnaði áður Brasilíska landsliðinu en hann hættir sem stjóri hjá Santos í Brasilíu. Fastlega má gera ráð fyrir því að Robonho fylgi honum til Madrídar en liðið varð á dögunum meistari í Brasilíu.

"Það er mikill heiður fyrir mig að fá að stjórna besta félagsliði heims" sagði Luxemburgo á blaðamannafundinum. Hann skrifaði undir eins og hálfs árs samning við félagið.

Þetta gæti sett hugsanlega sölu Fernando Morientes til Liverpool í bobba ef hann vill skoða hópinn sinn strax. Aftur á móti gæti þetta einnig ýtt undir það ef Robinho kemur nú strax í janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.