31.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Maric til Mönchengladbach (Staðfest)




Borussia Mönchengladbach hefur fengið króatíska sóknarmanninn Tomislav Maric að láni út þessa leiktíð frá Wolfsburg. Hinn 31 árs Maric hefur verið mikið meiddur á þessu tímabili og aldrei verið í byrjunarliði Wolfsburg en á seinustu leiktíð var hann fastamaður í liðinu og skoraði tólf mörk í 27 leikjum. Maric á ellefu landsleiki að baki fyrir Króata og vonast til að ná að sína sig hjá Mönchengladbach svo að hann verði valinn í leikmannahóp Króata fyrir Evrópumótið í Portúgal næsta sumar.
