31.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Stankovic til Inter (STAÐFEST)

Stankovic er genginn til liðs við Inter.

Internazionale hefur loksins gengið frá kaupum á miðjumanninum Dejan Stankovic frá Lazio. Fjölmiðlar á Ítalíu hafa bara verið að bíða eftir því að Stankovic yfirgæfi Lazio en félagið á í miklum erfiðleikum fjárhagslega. Ljóst er að það er mikill liðsstyrkur fyrir Inter að fá þennan leikmann frá Serbíu og Svartfjallalandi.
Roberto Mancini þjálfari Lazio segir að þetta sé stór missir fyrir liðið. "Ég var viss um að við gætum haldið honum en ég er bara þjálfarinn, félagið tekur ákvarðanirnar. Ég gat ekkert gert í þessu en nú þurfum við bara að horfa fram á veginn. Ekkert hefur breyst. Við erum með sterkt lið og þurfum að halda baráttunni áfram."
Samningur Stankovic við Lazio hefði runnið út eftir þetta tímabil en samningurinn sem hann gerði við Inter er til ársins 2008. "Ég vil þakka Inter fyrir trúnna og þolinmæðina sem þeir hafa sýnt. Ég ber mikla virðingu fyrir Lazio sem gaf mér tækifærið til að leika í hæsta styrkleikaflokki á Ítalíu. Ég gaf Lazio hluta af þeim pening sem ég fékk fyrir að undirrita samninginn með það í huga að samningur minn hefði runnið út í júní. Nú er ég að hefja nýtt ævintýri í stórliði hjá stóru félagi." sagði Stankovic á heimasíðu Inter.