„Gríptu tækifærið núna. Það er ekki víst að það bjóðist í framtíðinni," skrifar Sofyan Ambrabat, leikmaður Fiorentina, á Instagram í dag.
Amrabat vill fara frá ítalska félaginu en það hefur hafnað tilboði frá Barcelona. Amrabat hefur einnig verið orðaður við Liverpool, Tottenham og Atletico Madrid en flest bendir til þess að hann verði áfram hjá þeim fjólubláu.

Amrabat er varnarsinnaður miðjumaður sem blómstraði með marokkóska landsliðsliðinu á HM í Katar. Hann var í lykilhlutverki í því að vernda varnarlínu liðsins frá árásum andstæðinganna.
Hann er 26 ár og er samningsbundinn út næsta tímabil. Þá er einnig möguleiki á árs framlengingu á samningnum. Færsluna sem hann setti inn á Instagram má sjá hér að neðan.
Sjá einnig:
Amrabat reynir að þvinga fram sölu - Tilboði Barcelona hafnað
???? Amrabat on IG: pic.twitter.com/a7lQD64EBp
— Reshad Rahman (@ReshadRahman_) January 31, 2023
Athugasemdir