Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Átök í Frakklandi eftir sigur PSG - Margir slasaðir eða handteknir
Mynd: EPA
PSG vann Meistaradeildina annað árið í röð í gær þegar liðið lagði Arsenal af velli eftir vítaspyrnukeppni.

Franskir stuðningsmenn fögnuðu sigrinum heldur harkalega en BBC greinir frá því að 219 manns hafi slasast í átökum milli stuðningsmanna og frönsku lögreglunnar víða um Frakkland í gær. Þar af voru átta alvarlega slasaðir.

Þá kemur einnig fram að 780 manns hefðu verið handteknir, þar af yfir 450 manns í varðhaldi.

Um sex þúsund lögreglumenn hafa verið kallaðir út fyrir skrúðgöngu PSG liðsins í dag sem hefst við Eiffelturninn.


Slapp
banner
banner