Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 10:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Powerade
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Oliver Glasner, Junior Kroupi, Curtis Joens, Ibrahima Konate og fleiri koma við sögu.

Oliver Glasner, fyrrum stjóri Crystal Palace, er á leið í viðræður við AC Milan eftir að ítalska félagið rak Massimiliano Allegri. (Mail)

Bayern Munchen vill fá Junior Kroupi, 19, sóknarmann Bournemouth, sem varamann fyrir Luis Diaz, 29. (Absolut Bayern)

Liverpool og Inter eru í viðræðum um enska miðjumanninn Curtis Jones, 25, en Liverpool vill fá meira en 20 milljónir evra fyrir hann. (Fabrizio Romano)

Gabriel Sara, miðjumaður Galatasaray, 26, hefur gefið Aston Villa jákvætt svar við áhuga enska félagsins. (Sabah)

Chelsea hefur áhuga á hinum 17 ára gamla Mikkel Bro Hansen, sóknarmanni Bodö/Glimt. Newcastle og Man City eru einnig að skoða þennan danska ungling en samningur hans við norska félagið rennur út á næsta ári. (Caught Offside)

Sporting er að íhuga að lána gríska hægri bakvörðinn Georgios Vagiannidis, 24, sem er á óskalista Everton. (A Bola)

Chelsea hefur ákveðið að gera ekki tilboð í Ibrahima Konate, 27, sem er að yfirgefa Liverpool. Umboðsmenn franska varnarmannsins eru í viðræðum við Real Madrid og Bayern. (Teamtalk)

Juventus er að skoða David de Gea, 35, fyrrum markvörð Man Utd en hann er aðalmarkvörður Fiorentina í dag. (Goal)

Preston North End hefur virkjað kaupréttarákvæðið í lánssamningi Alfie Devine, miðjumanns Tottenham, og er tilbúið að slá félagsmet fyrir 21 árs gamlan Englending. (Lancashire Post)

Marokkóinn Abde Ezzalzouli, 24, vængmaður Real Betis, kemur til greina sem eftirmaður Anthony Gordon hjá Newcastle en Tottenham og Aston Villa hafa einnig áhuga. (Sport)
Slapp
banner