Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tekur ekki við af Mourinho
Mynd: EPA
Það er útlit fyrir að Marco Silva, stjóri Fulham, muni ekki taka við af Jose Mourinho sem stjóri Benfica.

Mourinho er mögulega á leið til Real Madrid en það gæti dottið upp fyrir sig ef Florentino Perez, núverandi forseti félagsins, verði ekki endurkjörinn í næstu viku.

Portúgalski miðillinn Record greinir frá því að viðræður Benfica og Silva hafi siglt í strand þar sem aðilar komust ekki að samkomulagi um launatölur.

Silva verður því líklega áfram hjá Fulham en enska félagið er tilbúið að bjóða honum nýjan samning.
Slapp
banner
banner
banner