31.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Hakan Yakin til PSG. (Staðfest)
PSG hefur fengið Svissneska landsliðsmanninn Hakan Yakin frá Basel á 1,5 milljónir punda. Yakin sem er 26 ára sókndjarfur miðjumaður sló í gegn með Basel í Meistaradeild Evrópu síðastliðinn vetur og var meðal annars undir smásjá Liverpool. Yakin hefur alla ævi leikið í Sviss en liðin sem hann hefur leikið með eru FC Concordia Basel, FC St. Gallen og Grasshopper-Club. Hann var að vonum í skýjunum yfir því að komast til PSG.
