Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 31. júlí 2022 17:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stærsta stjarna Þýskalands meiddist í upphitun
Mynd: EPA
Síðari hálfleikur er nýhafinn í úrslitaleik EM kvenna þar sem heimakonur í Englandi eru að spila gegn Þýskalandi.

Þýskaland varð fyrir miklu áfalli þegar Alexandra Popp meiddist í upphitun. Popp er fyrirliði liðsins og markahæst á mótinu með 6 mörk ásamt Beth Mead framherja Englands.

„Þetta er örugglega alveg hræðilegt. Skellur fyrir liðið, skellur fyrir hana. Búin að vera frábær, í raun búin að koma liðinu langleiðina í þennan leik," sagði Adda í umfjölluninni á Rúv.

Staðan er markalaus en Þýskaland er að elta sinn níunda Evróputitil en England hefur aldrei unnið EM áður.


Athugasemdir
banner
banner