31.07.26 - 15:20
Kári Snorrason
Áhugi erlendis frá en valdi KR - „Ekki heimkoman sem ég bjóst við“
Auglýsing

Skrifaði undir fjögurra ára samning við KR.

Mynd: KR

Uppalinn í Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á að baki þrettán leiki fyrir yngri landsliðin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn heillaði.

„Eftir áhugann sem KR og Óskar sýndu þá var þetta eiginlega aldrei spurning. Maður þurfti að vega og meta möguleikana og þetta reyndist vera sá besti,“ segir Sölvi Snær Ásgeirsson sem er nýjasti liðsmaður KR.
Tilkynnt var um komu Sölva í Vesturbæinn síðastliðinn þriðjudag en hann kom frá uppeldisfélaginu Grindavík og skrifaði undir fjögurra ára samning við KR.
Sölvi er varnarmaður fæddur 2008 sem spilaði 25 Lengjudeildarleiki með Grindavík á árunum 2023-25.

Áhugi erlendis frá
Sölvi segir það hafa verið áhuga erlendis frá en vill halda sér heima í bili. „Það voru nokkur hérlendis og nokkur úti líka en mér best að halda mér innan landsteinanna núna, fannst það besta valið.“
Hann var lánaður til LASK Linz í Austurríki í sumarglugganum í fyrra en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum og sneri hann til baka til Grindavíkur í vor.
„Þetta var sturlað, geggjuð byrjun sem ég bjóst ekki alveg við. Fór þarna út og spilaði með varaliðinu. Eftir eina viku var ég kominn í aðalliðið og spilaði æfingaleik með þeim. Svo kom skellur, sleit liðband í ökklanum og náði mér aldrei á flug eftir það.“
„Þeir gerðu mér ljóst að þeir ætluðu ekki að kaupa mig frekar snemma. Ég kom í rauninni bara beint heim eftir það. Þetta var um miðjan apríl og fyrst það stóð til boða að koma heim strax var það ekki spurning.“
Snúa til baka eftir þrálát meiðsli
Sölvi spilaði ekkert með Grindavík í sumar þar sem hann var að bíða eftir leikheimild. Þegar leikheimildin loks kom þá meiddist hann í leik með 2. flokki Grindavíkur.
„Það var bras, mjög leiðinlegt. Þetta var ekki heimkoman sem ég bjóst við. Þetta fór eins og það fór og maður verður bara að díla við það.“
Hann segir stöðuna þó betri í dag. „Ég er aðeins farinn að geta hreyft mig úti á velli þannig þetta smellur vonandi fljótt saman núna.“
Hann lýsir sér sem nútíma hafsent. „Ég er lunkinn hafsent, góður með boltann, góðar sendingar og snöggur,“ segir Sölvi að lokum.