31.07.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Newcastle borgar 30 milljónir fyrir Hornicek

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle United er að ganga frá fimmtu kaupum sumarsins. Markvörðurinn Lukas Hornicek er á leiðinni úr röðum portúgalska félagsins SC Braga.
Newcastle er tilbúið að virkja riftunarákvæðið í samningi Tékkans, sem nemur 30 milljónum evra, og er í viðræðum við Braga um greiðsluáætlun.
Hornicek, 24 ára, er hugsaður sem aðalmarkvörður, en Nick Pope og Ewen Jaouen munu ekkert gefa eftir í baráttunni um byrjunarliðssætið á milli stanganna. Hann á einn A-landsleik að baki fyrir Tékkland og nú gætu tveir Tékkar leikið hlutverk aðalmarkvarða í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð eftir að Antonín Kinský fékk aukna ábyrgð hjá Tottenham.
Hornicek er fimmti leikmaðurinn sem Newcastle fær til liðs við sig í sumar fyrir 140 milljónir punda í heildina, sem samsvara tæpum 165 milljónum evra.
Bazoumana Touré, Aladji Bamba, Ewen Jaouen og Sean Steur kostuðu samanlagt um 115 milljónir punda.
Newcastle fékk aftur á móti rúmar 170 milljónir inn fyrir sölurnar á Sandro Tonali og Anthony Gordon fyrr í sumar.

TENGT EFNI
Newcastle tilkynnir um brotthvarf Howe (Staðfest)

Mynd: EPA