Fotbolti.net
31.07.26 - 13:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óskar Morales í KA (Staðfest)

Óskar Morales í KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Esbjerg

Óskar Arnór Morales Einarsson hefur fengið félagaskipti í KA en hann kemur frá danska félaginu Esbjerg.

Óskar er fæddur árið 2007 og er uppalinn hjá KA. Á síðasta ári lék hann þrjá leiki með U19 landsliðinu.
Hann er nokkuð hávaxinn örvfættur miðvörður sem hefur spilað með U19 liði Esbjerg.

Óskar er nefndur í umfjöllun Fótbolta.net eftir N1 mótið árið 2019 en þá var hann annar af mönnum leiksins í úrslitaleik argentínsku deildarinnar þar sem KA og Valur mættust. Hann er sonur Einars Loga Friðjónssonar fyrrum atvinnumanns í handbolta.

Óskar fær leikheimild með KA á morgun og getur verið í hópnum gegn Keflavík á miðvikudag.

Önnur tíðindi af félagaskiptum og KA eru þau að félagið kallaði Bjarka Fannar Helgason til baka úr láni frá Völsungi í vikunni. Bjarki Fannar er 21 árs miðjumaður/kantmaður sem lék sjö leiki með Völsungi í Lengjudeildinni.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram16+1334
4Breiðablik16+929
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍA16-818
8ÍBV16-816
9KA16-815
10Stjarnan16-1215
11FH16-1113
12Þór16-2512
Verðlaunaður á lokahófi Esbjerg fyrr í sumar. Fékk nafnbótina Årets fighter í U19 liðinu á liðnu tímabili.

Verðlaunaður á lokahófi Esbjerg fyrr í sumar. Fékk nafnbótina Årets fighter í U19 liðinu á liðnu tímabili.

Canon

Mynd: Esbjerg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.