31.07.26 - 10:29
Kári Snorrason
Óskar segir Arnar hafa verið eins og brúðuleikstjóra - „Þurfti að standa upp og svara þessum mönnum“

Segir allt öðruvísi áru á Víkingsbekknum í dag.

Mynd: Fótbolti.net

Arnar fylgist með þegar Sölvi Geir fær rautt spjald í umræddum leik.

Mynd: Fótbolti.net

Frá rútuleiknum fræga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það var sennilega í eina skiptið sem ég hef æst mig af einhverju ráði,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson um eftirminnilegan æsing eftir leik Breiðablik og Víkings á Kópavogsvelli 2023.
Eflaust náði rígur liðanna hámarki þarna og fóru þeir Óskar og Arnar í eftirminnileg viðtöl við Gunnlaug Jónsson á Stöð 2 Sport eftir leik þar sem þeir skutu hvor á annan.
Óskar ræddi um hvernig hann þurfti að standa upp gegn Víkingsbekknum þegar Arnar Gunnlaugsson var við stjórnvölinn í hlaðvarpinu Jón Ólafs á spjallinu.

„Þá varð ég að gera það því Víkingsbekkurinn með Arnar Gunnlaugsson fremstan í flokki, hann var eins og einhvers konar brúðuleikstjóri. Sendi Sölva, Cardaklija, Einar Guðna, liðsstjórann og alla einhvern veginn. Á einhverjum tímapunkti þurfti að standa upp og svara þessum mönnum,“ segir Óskar en nú segir hann að öldin sé önnur.
„Eftir að Arnar fór er allt önnur ára yfir bekknum hjá Víkingi. Það er raunverulega engin ástæða í dag fyrir að setja sig í gír. Ég get alveg viðurkennt það að fyrir Víkingsleikina þegar ég var með Breiðablik þá hlustaði maður á Rammstein og setti sig í gírinn. Það var nauðsynlegt, gamla skóla 'bullies',“ segir Óskar.