31.07.26 - 16:30
Kári Snorrason
Selur gullið frá HM á uppboði

Fagnar með Ousmane Dembele og Kylian Mbappe.

Mynd: EPA

Benjamin Mendy hefur selt gullmedalíu sína frá HM 2018 í Rússlandi á uppboði.
Alls bárust 38 tilboð í medalíuna og nam hæsta boðið 46 þúsund pundum, tæplega átta milljónum króna.
Mendy hefur verið í miklum peningavandræðum síðustu ár eftir að vera ákærður fyrir nauðganir. Hann var síðar sýknaður af ákærunum en málið hefur dró fjárahgslegan dilk á eftir sér.

Hann greindi frá því árið 2023 að liðsfélagar hans hjá City hefðu lánað honum peninga þar sem hann hefði ekki átt fyrir barnameðlagi.
City greiddi honum ekki laun á meðan málinu stóð og hefur ferillinn farið hratt niður á við síðan þá.
Fyrir þremur árum neyddist hann til að selja glæsihýsi sitt til að komast hjá gjaldþroti. Í dag spilar hann hjá Pogon Szczecin í Póllandi.