31.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Ariel Ibagaza til Atletico Madrid. (Staðfest)

Ariel Ibagaza kominn til Atletico Madrid.


Ariel Ibagaza kominn til Atletico Madrid.

Atletico Madrid hefur gengið frá kaupunum á Ariel Ibagaza en hann kemur frá Mallorca. Þessi 26 ára sóknarsinnaði miðjumaður skrifaði undir þriggja ára samning við Atletico en kaupverðið var ekki gefið upp. Þessi félagsskipti hafa verið í vinnslu lengi en eru sem sagt loksins komin í gegn. Ibagaza sem er Argentínumaður hrósaði öllu hjá Atletico mikið og segir að stuðningsmenn félagsins séu þeir bestu.
