31.08.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson
Dino Baggio til Blackburn (staðfest)

Dino Baggio


Dino Baggio

Ítalinn Dino Baggio hefur skrifað undir lánssamning út þetta tímabil við enska úrvalsdeildarliðið, Blackburn Rovers. Baggio, sem er 32 ára, kemur frá Lazio en hann hefur undanfarið verið að æfa með liði Blackburn.
Fyrir nokkru voru forráðamenn Úlfanna að hugsa um að fá Baggio til liðs við sig en sú skipti duttu upp fyrir. Áður hefur hann leikið með liðum á borð við Juventus, Parma, Inter Milan og Torino.
