31.08.04 - 20:23
Magnús Már Einarsson
Bothroyd til Blackburn (Staðfest)

Nýr leikmaður bætist í hópinn.

Nýr leikmaður bætist í hópinn.

Blackburn Rovers hefur fengið enska sóknarmaninn Jay Bothroyd að láni út þetta tímabil frá ítalska Serie B liðinu Perugia en möguleiki er á að enska liðið kaupi hann í vor. Bothroyd sem að er 23 ára var eini leikmaðurinn frá Englandi sem að lék í Serie A á síðustu leiktíð en hann gekk til liðs við Perugia sumarið 2003 eftir að hann var leystur undan samningi hjá Coventry.
Blackburn ákvað að fá hann þar sem að Dwight Yorke er líklega á leið til Glasgow Celtic í kvöld.
Graeme Souness stjóri Blackburn sagði meðal annars á heimasíðu liðsins um Bothroyd."Hann hefur skorað mörk í Serie As em að er erfið deild til að skora í. Við vonumst til að ná því besta út úr honum."