31.08.04 - 22:31
Magnús Már Einarsson
AC Milan fær yngri bróðir Kaka (Staðfest)

Litli bróðir Kaka er kominn til AC Milan.


Litli bróðir Kaka er kominn til AC Milan.

AC Milan hefur fengið brasilíska varnarmanninn Diago að láni út þessa leiktíð frá Sampdoria. Diago sem heitir fullu nafni Rodrigo Izecson Dos Santos Leite er 19 ára varnarmaður. Hann er yngri bróðir miðjumannsins sókndjarfa Kaka sem að sló í gegn í herbúðum AC Milan á síðustu leiktíð. Diago mun spila með B-liði AC Milan en þar þjálfar gamli varnarjaxlinn Franco Baresi.
